Urðaviti
  • Urdaviti-3-vef

Urðaviti

Fyrst var reistur viti á Urðum austast á Heimaey árið 1925. Sá viti fór undir hraun í eldgosinu 1973. Skömmu eftir að gosi lauk var Urðaviti endurreistur á nýju landi úr iðrum eldfjallsins. Tvisvar fór hann í sjóinn því hratt braut af nýja hrauninu.

Urðaviti sá sem nú stendur var byggður árið 1986 eftir teikningum Steingríms Arasonar verkfræðings. Þar mynda stigi og stigapallur undirstöðu ljóshúss úr trefjaplasti sem geymir vitatækin. Vitinn hefur verið með rafljósi frá upphafi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica