Hvalasafnið á Húsavík
-
Hvalasafnið á Húsavík
- Hafnarstétt 1
640 Húsavík
Sími: 414 2800 - Netfang: info [hjá] whalemuseum.is
- Vefur: www.whalemuseum.is
Um safnið
Hvalasafnið á Húsavík gegnir lykilhlutverki í fræðslu og upplýsingamiðlun um hvali og lífríki þeirra hér við land. Í 1600 fermetra sýningarrými er að finna margvíslegan fróðleik um hvali og samskipti manna og hvala, s.s. hvalveiðar, hvalreka, hvalaskoðun og þróun tegundarinnar. Beinagrindur af 9 tegundum hvala gefa góða mynd af stærð og mikilfengleika þessara stórkostlegu dýra.
Enginn áhugamaður um hvali ætti að láta heimsókn á hvalasafnið framhjá sér fara. Yfir 180.000 hafa heimsótt safnið frá stofnun þess 1997.
Opnunartími
Júní, júlí og ágúst
alla daga kl. 09:00 - 19:00.
Maí og september
alla daga kl. 10:00 - 17:00.
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.
Aðgangseyrir
Fullorðnir: 900 kr.
Börn (6 - 14 ára) : 450 kr.
Aldraðir frá 65 ára: 750 kr.
Hópar (10 eða fleiri): Fullorðnir 750 kr., börn 350 kr.

