Sjóminjasöfn

Sjóminjasafn Austurlands

  • Sjominjasafn-austurlands
  • Sjóminjasafn Austurlands

  • Strandgata 39b, Eskifjörður
    Sími: 470 9063
  • Netfang: peturs [hjá] fjardabyggd.is


Safnið er til húsa í gömlu verslunarhúsi sem verslunarfélagið Örum & Wulff byggðu um 1816.  Carl D. Tulinius, sem var starfsmaður hjá félaginu, keypti verslunina um 1860 og rak hana til dauðadags árið 1905 og þá tóku við afkomendur hans og kölluðu fyrirtækið C.D. Tulinius efterfölgere og starfaði það til ársins 1912.  Á þeim tíma var byggt nýtt verslunarhús og við það hlaut eldra húsið nafnið Gamla-Búð og hefur það haldist alla tíð síðan.  Gamla-Búð hefur þjónað margvíslegum hlutverkum á Eskifirði, eftir að verslunin var flutt, fyrst sem pakkhús og síðar fiskgeymsla, veiðarfærageymsla og fleira.  Byrjað var á endurbyggingu hússins árið 1968 og var því lokið árið 1983 og safninu komið þar fyrir og fyrsta sýning þess opnuð sumarið 1983.




Til baka Senda


Þetta vefsvæði byggir á Eplica