Byggðasafnið í Skógum
-
Byggðasafnið í Skógum
-
861 Hvolsvöllur
Sími: 487 8845
Fax: 487 8848 - Netfang: skogasafn [hjá] skogasafn.is
- Vefur: www.skogasafn.is
Um safnið
Byggðasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga í Skógum er þrískipt, landbúnaðarsafn, sjóminjasafn og samgöngusafn.
Sjóminjadeild þess er í minjum höfuðheimild um sjósókn frá
brimsöndum Suðurlands og mesti dýrgripur hennar er skipið
Pétursey byggt með brimsandalagi árið 1855. Það er í senn
áraskip og seglskip. Sexæringurinn Víkingur frá 1909 er með
sama lagi, svo og síðasti vorbátur Mýrdælinga, Farsæll, frá
1960. Í sjóminjum er allt sem tengist aflabrögðum, gömlum
sjóklæðum, flutningi fiskafla frá sjó og allri meðferð til
matar. Áhöld skipasmiðs eru í sýningu og safn fornra
rekamarka minnir á efnivið áraskipa.