Byggðasafnið Görðum
Byggðasafnið Görðum
-
Byggðasafn Akraness og nærsveita
-
Garðar, 300 Akranes
Sími: 431-1255 / 431-5566 - Netfang: museum@museum.is
- Vefur: www.museum.is
Safnið er stofnað árið 1959 og er starfssvæði þess Akranes
og Hvalfjarðarsveit. Markmið
sjóminjadeildar safnsins er að safna, skrá, varðveita,
rannsaka og sýna minjar sem tengjast sjó og sjómennsku frá
byggðarlaginu. Safnið varðveitir gott úrval sjóminja og
eru þar til sýnis margir bátar. Kútter Sigurfari frá árinu
1885 er þeirra veglegastur og eini kútterinn
sem varðveittur er úr fyrri
tíðar þilskipastóli Íslendinga.